# Mailchimp eða Klaviyo? Hvenær borgar sig að færa sig?
> Flestir byrja á Mailchimp. En þegar listinn stækkar og netverslunin tekur við sér fer önnur spurning að birtast: af hverju skilar tölvupósturinn svona litlu?
Höfundur: Sigurður Már Sigurðsson (Velora)
Birt: 2026-06-18
Flokkur: Tölvupóstmarkaðssetning
Vefslóð: https://velora.is/greinar/mailchimp-eda-klaviyo
---
Flestir íslenskir netverslunareigendur byrja á Mailchimp. Það er ódýrt, allir hafa heyrt um það og uppsetningin tekur klukkutíma. Eftir tvö til þrjú ár fer sama spurningin að birtast: af hverju skilar tölvupósturinn svona litlu þegar listinn er löngu kominn yfir þúsund manns?

Svarið er sjaldnast að listann vanti fleiri viðtakendur. Svarið er að verkfærið er hannað fyrir annað.

## Mailchimp er byggt fyrir fréttabréf, Klaviyo fyrir tekjur

Mailchimp varð til sem fréttabréfaverkfæri og ber þess merki enn í dag. Það lítur á alla viðtakendur sem einn hóp og talar við þá alla í einu. Það veit ekki hver var nýbúinn að skoða vöru, hver yfirgaf körfu fyrir hálftíma síðan og hver hefur ekki keypt í sex mánuði.

Klaviyo var hannað fyrir netverslanir frá fyrsta degi. Það talar við Shopify og WooCommerce án milliliða, sem skiptir sköpum fyrir flestar netverslanir á Íslandi, les hegðun viðskiptavinarins í rauntíma og sendir tölvupóst sem byggir á því sem viðkomandi var raunverulega að gera á vefnum þínum. Munurinn í daglegri vinnu er stærri en flestir átta sig á.

Þrír þættir skipta mestu máli:

- **Segmentation sem virkar.** Í Mailchimp tekur tíma að búa til hóp sem byggir á kauphegðun og útkoman er oft ónákvæm. Í Klaviyo dregurðu skilyrði saman á nokkrum sekúndum og hópurinn uppfærist sjálfvirkt.
- **Flows sem hugsa eins og verslunin þín.** Browse abandonment, post-purchase, win-back og VIP-flokkun eru innbyggð í Klaviyo. Í Mailchimp þarftu plug-ins, Zapier og þolinmæði.
- **Attribution sem þú treystir.** Klaviyo sýnir nákvæmlega hvaða krónur komu úr hverju flow. Mailchimp segir þér aðallega hversu margir opnuðu póstinn.

## Hvað þetta þýðir í krónum talið

Hjá einum íslenskum kúnna sem ég vinn með skilar Klaviyo þessari mynd á 30 dögum:

![Klaviyo flows skiluðu ISK 692 þúsund í attributed tekjur á 30 dögum, 89 prósent vöxtur milli tímabila](https://rzbaovhiwfyvmcsadncz.supabase.co/storage/v1/object/public/blog-images/klaviyo-flows-30-daga.webp)

Tölvupósturinn ber ábyrgð á rétt tæpum 13 prósentum af heildartekjum mánaðarins (í gegnum netverslunina) og 100 prósent af þeim tekjum koma úr sjálfvirkum flows, ekki úr nýjum herferðum. Vöxturinn milli tímabila er 89 prósent, sem er hraðar en heildarreksturinn vex.

Þetta eru ekki tölur sem sjást í hvaða kringumstæðum sem er. Upphæðirnar ráðast af því hver á í hlut, hversu virkur listinn er, hvað er selt, hvernig vörurnar eru notaðar og hvaða umferð er á síðunni til að byrja með. En hlutfallið, að sjálfvirknin sjálf standi undir tveggja stafa prósentu af tekjum, er nokkuð stöðugt þegar uppsetningin er rétt.

## Tölvupóstur lagar ekki vandamál sem hann á ekki að leysa

Þetta er punkturinn sem ég vil staldra við, því hann týnist of oft í umræðunni.

Tölvupóstmarkaðssetning er ein hagkvæmasta leiðin sem til er. Það breytir ekki því að ekkert gerist af sjálfu sér. Ef þú ert ekki að fá neina umferð inn á síðuna, ef enginn er að bætast á póstlistann og ef enginn er að kaupa, þá mun fjárfesting í Klaviyo seint bjarga þér.

Fyrirtækið í dæminu hér að ofan er ekki að treysta á tölvupóstinn einan. Það er með virkt markaðsstarf, birtingafé á mismunandi miðlum og stöðugt streymi af nýjum heimsóknum inn á vefinn. Tölvupósturinn styður við þetta starf og umbreytir umferðinni í tekjur. Hann skapar hana ekki.

Ef vefurinn fær nokkur hundruð heimsóknir á viku, lítið keypt og póstlistinn er ekki að stækka, þá er Mailchimp ekki vandamálið. Þá þarf að skoða hvar vandinn liggur í fyrirtækinu, kannski er það vöruframsetningin eða auglýsingareksturinn sem þarf að taka fyrst. Klaviyo bætir engu við þar sem grundvallarvandamál er fyrir.

## Hvenær Mailchimp dugar ennþá

Það er heiðarlegt að segja þetta hreint út. Mailchimp er nógu gott fyrir:

- B2B fyrirtæki sem sendir mánaðarlegt fréttabréf og er ekki með netverslun
- Lítinn áskrifendalista undir nokkra tugi manns þar sem flæðin eru of fá til að réttlæta dýrara verkfæri
- Verkefni þar sem tölvupósturinn er aukaatriði og enginn ætlar að reka hann markvisst

Ef þetta lýsir þínum rekstri þá er engin ástæða til að færa sig. Það kostar tíma, athygli og pening sem mætti nýta annars staðar.

## Hvenær breytingin borgar sig

Klaviyo verður yfirleitt rétta valið þegar þrjár forsendur eru til staðar:

1. **Þú selur á netinu.** Shopify, WooCommerce, eða önnur netverslunarlausn sem talar við kerfið. Án þessa missir Klaviyo helminginn af kraftinum.
2. **Listinn er virkur og að stækka.** Það þarf umferð á síðuna og raunverulegur ávinningur af því að bæta fólki við.
3. **Þú vilt sjálfvirkni (marketing automation) sem ber tekjur, ekki bara fréttabréf.** Flows fyrir körfur, eftir kaup, win-back og segmentation eftir kauphegðun.

Þegar allt þetta er til staðar er þessi breyting ein arðbærasta breyting sem hægt er að gera á "tæknistakknum".

## Að taka rétta ákvörðun

Þegar forgangsraða þarf verkþáttum og samskiptaleiðum í markaðsstarfi, miðað við markmið og styrkleika fyrirtækisins, er skynsamlegast að taka upplýsta ákvörðun sem byggir á þekkingu og reynslu, eða ráðfæra sig við sérfræðing.

Tölvupósturinn er sjaldnast fyrsti staðurinn til að byrja, og hann er sjaldnast eini staðurinn sem skiptir máli. Hann er einn hluti af stærri heild og virkar best þegar hann er settur upp á réttum tíma, fyrir réttan rekstur og með réttum væntingum.

Ef þú ert að velta þessu fyrir þér og veist ekki hvort Mailchimp eða Klaviyo eigi við hjá þér, eða hvort tölvupósturinn eigi yfirleitt að vera næsta skref, þá er hægt að hafa samband við mig og ég fer yfir stöðuna með þér. Ég veiti ráðgjöf og framkvæmd við uppsetningu á póstlistavirkni eins og þeirri sem um ræðir hér.
