5 yfirsjónir sem flestar íslenskar netverslanir eiga sameiginlegt
Að reka netverslun er krefjandi og auðvelt er að missa sjónar á stóru myndinni. Hér eru fimm algengar glufur sem kosta íslenskar netverslanir dýrmæta sölu, og hvernig þú getur auðveldlega lokað þeim.
Höfundur: Sigurður Már Sigurðsson, Velora. Birt 2026-04-19.
Ég sé sömu fimm yfirsjónirnar aftur og aftur þegar ég kíki inn í íslenskar netverslanir. Ekki af því að eigendurnir séu lélegir, heldur af því að þeir eru of nálægt sínum eigin rekstri til að sjá þær. Þú ert að pakka, svara pósti, redda auglýsingum og slökkva elda. Svo líður dagurinn, vikan, mánuðurinn, og þú færð þá tilfinningu að það séu peningar að leka einhvers staðar, en þú veist ekki hvar.
Hér eru fimm yfirsjónir sem ég sé oftast. Ef ein þeirra hringir bjöllum, þá ertu líklega með leka sem þú getur lokað í þessari viku.
Yfirgefin karfa sem enginn fylgir eftir
Manneskja kemur inn á vefinn þinn, setur vöru í körfu, smellir á greiðslusíðuna og hverfur. Síminn hringdi, barnið kallaði, eitthvað. Þetta er besta lead-ið sem þú færð þann daginn, og í flestum verslunum sem ég skoða gerist nákvæmlega ekkert næst.
Engin áminning. Enginn póstur. Ekkert.
Þú ert ekki að missa af kaldri umferð. Þú ert að missa af manneskju sem var komin með kortið í höndina.
Þú talar bara við einn markhóp
Þú stofnaðir verslunina með ákveðna manneskju í huga. Konu yfir þrítugu. Útivistarmanninn. Foreldrið. Það sem gerist næst er að allt markaðsefnið þitt talar bara við þá manneskju, og þú trúir því smám saman að það séu einu kaupendurnir.
Á meðan eru aðrir hópar að kaupa af þér án þess að þú vitir af því, og enn fleiri sem myndu kaupa ef þú talaðir við þá. En af því þú gerir það ekki, vita þeir aldrei að þú sért til.
Allt líf þitt snýst um jólin
Nóvember og desember eru stóru mánuðirnir. Það vita allir. Vandamálið er að margir eigendur líta á hina tíu mánuðina sem dvala.
Það er heilsugírinn í janúar. Vorið þegar fólk fer að huga að garðinum. Sumarið og ferðalögin. Skólabyrjun í ágúst. Hver einasta árstíð hefur sinn vinkil, líka fyrir þína vöru. Ef þú keyrir bara stórar herferðir á svarta föstudeginum, þá ertu alltaf að keppa við alla hina þegar samkeppnin er hörðust og auglýsingakostnaðurinn hæstur.
Póstlistinn þinn er bara afsláttarvél
Tölvupóstur er enn arðsamasta markaðsleiðin sem þú átt. Þú átt listann sjálfur, hann kostar þig sáralítið, og fólkið á honum hefur sagt já við þér einu sinni nú þegar.
Svo af hverju lítur hver einasti póstur sem þú sendir út eins og auglýsing? "20% afsláttur". "Nýjar vörur mættar". "Síðasti dagur".
Tvennt gerist. Fólk hættir að opna póstana þína. Og þeir sem opna læra að bíða eftir næsta afslætti í stað þess að kaupa á fullu verði. Þú ert að þjálfa viðskiptavinina þína í að bíða.
Allt efnið þitt snýst um þig
Opnaðu forsíðuna þína. Lestu „Um okkur". Lestu vörutextana. Hversu oft stendur „við", „okkar", „okkur fannst"? Hversu oft stendur „þú"?
Viðskiptavininum er í grunninn alveg sama um fyrirtækið þitt. Honum er annt um sín eigin vandamál. Þegar þú talar um hversu frábær þú ert, þá er hann ekki að lesa um sig. Hann er að lesa um þig, og hann er löngu kominn áfram.
Eitt atriði í einu
Þú þarft ekki að laga þetta allt í einu. Það er einmitt ein af ástæðunum fyrir því að flestir laga ekki neitt.
Veldu eina af þessum fimm. Þá sem þér finnst óþægilegust að lesa. Það er yfirleitt sú sem er að kosta þig mest.
Ef þú vilt fá skýra mynd af því hvar lekinn er í þínum rekstri og hvernig þú lokar honum, geturðu bókað úttekt hjá mér.
Hreint markdown afrit af þessari grein