Sérfræðiþekking í stafrænni markaðssetningu
Velora hóf stöf í lok árs 2024 með það markmið að bjóða upp á persónulega og virðisaukandi markaðsþjónustu sem byggir á raunverulegri tengingu við viðskiptavini. Með fjölbreytta reynslu og mikinn áhuga á mannlegri hegðun, tækni og lausnamiðuðum nálgunum hef ég nýtt mér tæknilausnir, þar á meðal gervigreind, til að bæta skilvirkni og leysa tímafrekar og oft kostnaðarsamar áskoranir með einfaldari hætti en áður var mögulegt.
Velora snýst um að vinna náið með viðskiptavinum og tengjast þeim á persónulegan hátt. Markaðssetningin ætti að byggjast á því að skapa tengsl og ná árangri sem skilar sér raunverulega. Ég legg áherslu á heiðarleg samskipti og það að skilja hvað skiptir mína viðskiptavini máli, svo hægt sé að þróa skilaboð og aðferðir sem hitta í mark hjá þeirra markhópi.
Þegar verkefni krefst sérhæfðrar þekkingar utan míns sérsviðs, vinn ég með traustu fagfólki úr ýmsum greinum, en stýri verkefninu þannig að útkoman sé hnitmiðuð og virði bæði tíma og fjárfestingu. Hvort sem um er að ræða ráðgjöf, framkvæmd eða samstarf við aðra sérfræðinga, þá er markmiðið alltaf að skapa lausnir sem hafa raunveruleg áhrif og styðja við markmið viðskiptavina.

Hvers vegna?
01
Sérsniðin nálgun
Þínar áskoranir eru einstakar og við finnum saman hvernig við getum hjálpað þér að leysa þær án þess að reyna að selja þér meira en þú þarft.
02
Fjölbreytt hæfni
Á bak við Velora er Sigurður, sérfræðingur með víðtæka þekkingu á markaðssetningu, efnissköpun og tækni. Hvort sem um er að ræða ráðgjöf eða framkvæmd, tryggir hann að hver aðgerð byggi á sérfræðiþekkingu.
03
Sveigjanleiki og samvinna
Þú færð persónulega þjónustu þar sem Sigurður vinnur náið með þér og sér til þess að þú fáir það besta úr verkefninu. Þegar þörf er á, leitar hann til sérfræðinga á sínu sviði og tryggir þannig að allar lausnir séu bæði skilvirkar og faglega unnar.
Algengar spurningar
Hér finnur þú nokkrar algengar spurningar sem þú gætir verið að leita eftir svörum við
Eruð þið með verðskrá?
Þjónustan okkar er sérsniðin og ekki „hilluvara“. Við aðlögum þjónustuna að þörfum hvers viðskiptavinar, þar sem sum óska eftir reglulegum samskiptum, endurgjöf og vinnustofum, á meðan önnur vilja einungis fá vissu um að mánaðarlegar samfélagsmiðlabirtingar þeirra séu í góðum málum. Við gerum tilboð í hvert verkefni út frá þínum markmiðum og þínum þörfum. Hafðu samband við okkur fyrir ókeypis ráðgjöf og kostnaðarmat.
Ég veit ekki nákvæmlega hvað mig vantar, en mig vantar einhverja markaðstengda aðstoð, get ég fengið hjálp?
Sendu okkur fyrirspurn og segðu okkur frá því sem þú hefur í huga. Við byrjum á því að hlusta á þig og kanna hvaða þjónusta gæti hjálpað þér að ná þínum markmiðum. Saman getum við komist að því hvaða lausnir myndu nýtast þér best.
Get ég fengið þjónustu fyrir bara eitt verkefni eða herferð?
Já, við bjóðum upp á þjónustu fyrir einstök verkefni og herferðir. Hvort sem þig vantar aðstoð með stakt markaðsverkefni eða vilt byggja upp langtímastefnu, getum við aðstoðað þig með lausnir sem henta þínum þörfum og fjárhagsáætlun.
Hvað ef ég vil einungis fá ráðgjöf og sjá um framkvæmdina sjálf/ur?
Við bjóðum upp á ráðgjafarþjónustu þar sem við veitum þér innsýn og ráðleggingar sem þú getur nýtt við framkvæmdina. Við getum komið með stefnumótandi tillögur, en framkvæmdin er í þínum höndum. Þetta er góð lausn fyrir þau sem vilja sjá um handavinnuna en óska eftir leiðsögn.
Er einhver binding eða langtímasamningur hjá Velora?
Það er ekki nauðsynlegt, við trúum á sveigjanleika og viljum að þú sért sáttur með samstarfið. Þú getur valið hvort þú vilt langtímasamstarf eða einstaka verkefni – okkar markmið er að veita þér þá þjónustu sem hentar best fyrir þínar þarfir, án óþarfa bindinga.
Ég veit hvað ég vil, en þarf aðeins hjálp við að útfæra og setja upp herferðirnar. Getur Velora hjálpað?
Já, við getum hjálpað þér að útfæra og setja upp herferðir nákvæmlega í takt við þínar áherslur og markmið.
Er enn einhverju ósvarað?
Smelltu á hnappinn hér að neðan og sendu inn þína fyrispurn